rss2
:: Ágúst H. Bjarnason
ahb.is · American English
Fróðleikur um flóru og gróður
rss2 wordpress content atom dc sy
- Last post
- Feb 11, 2024
- Posts in 24 h · 7 days · 30 days
- 0 · 0 · 0
- Our last check
- Answering
- Served from
- United States
- Site title
- :: Ágúst H. Bjarnason – Fróðleikur um flóru og gróður
- Text score at discovery
- 3,769
- Format
- rss2
- Features in the feed
- content, atom, dc, sy
- Community
- wordpress
Posts
What our queue read from this feed. Open one to read it here, or go to the site that published it.
- Skrá um háplöntur á Íslandi (pdf)
Feb 11, 2024 · original
plontulisiti_24_02_09 Skrá um háplöntur á Íslandi (pdf): Helztu heimildir ( hér ) Inngangur ( hér ) - Naflar á förnum vegi
Jul 28, 2023 · original
Eftirtektarvert er, að mjög víða á stórum steinum og í klettum vaxa blaðkenndar fléttur, sem eru festar við undirlagið aðeins með einum sterkum miðstreng. Fléttur þessar nefnast því naflar (Umbilicaria), en nafli á latínu er umbilicus. Auðvelt er að losa þær frá steinum, en í þurrki eru þær mjög stökkar og brotgjarnar, en í vætu mjúkar viðkomu. Það getur verið skemmtilegt á ferðalagi um landið að hafa eitthvert áhugamál, sem blasir við á mörgum stórum steinum eða klettum við veginn, ekki sízt, þegar farið er um fjallvegi. Flestar tegundir er fremur auðvelt að greina og alltaf má hafa hjálp af myndum. Þar er um tvennt að velja, annars vegar vefsíðu eftir Hörð Kristinsson: https://www.floraislands.is/flettur.html og hins vegar bókina Íslenskar fléttur eftir sama höfund; þar má einnig fræðast um gerð og lífshætti féttna. Fléttur er fjölskrúðugur hópur, þar sem saman tvinnast sambýli svepps - „Sáð er forgengilegu, en upprís óforgengilegt“
May 15, 2023 · original
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 27. júlí 1995. Einhverra hluta vegna kom greinin við kaunin á mektarmönnum, en henni var því miður aldrei svarað heldur var eg settur á „svartan lista” að því starfsmaður í landbúnaðarráðuneytinu sagði mér. Grasræktarlandið! Almennt áhugaleysi og jafnvel óbeit á skógrækt er nú á hröðu undanhaldi. Í mörg ár risu ýmsir forkólfar gegn skógrækt og sögðu, að Ísland væri “grasræktarland” og því bæri að leggja áherzlu á að dreifa tilbúnum áburði og sá grasfræi. Undanfarna þrjá áratugi hefur milljónum á milljónir ofan verið ausið í þetta og er árangur sáralítill, ef undan eru skildar sáningar á melgresi og túnaræktun. Eg hef bent á þetta áður og líkt þessu við að mála hús með vatnslitum eða henda milljónum út um glugga á flugvél. Draga má fram í dagsljósið fjölmargt sem styður þessar fullyrðingar, sem mörgum virðast fram settar af ábyrgðarleysi og fákunnáttu. - Blaðmosar á Íslandi
Nov 22, 2022 · original
Ný skrá um blaðmosa á Íslandi: bladmosar_1 - Ágrip af grasa- og dýrafræði
Nov 10, 2022 · original
Hér að neðan er lykill að gömlu kennsluhefti: agripnytt07 - Flatmosar og hornmosar á Íslandi
Sep 27, 2022 · original
Í eftirfarandi PDF-skjali er listi yfir skráðar tegundir flat- og hornmosa, sem vaxa á Íslandi. Listi þessi er verulega frábrugðinn fyrri listum (sjá meðal annars Bergþór Jóhannsson: Íslenskir mosar – Skrár og viðbætur. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar n:r 44. Apríl 2003 og Á.H.B.: Mosar á Íslandi. 2018.) – Mörg ný íslenzk ættkvíslar- og tegundarnöfn koma hér fyrir , enda æskilegt, að nöfnin feli í sér skipan fræðikerfisins, sem plöntunum er raðað eftir. flatmosar_11 Helzta heimild: An annotated checklist of bryophytes of Europe, Macaronesia and Cyprus G. Hodgetts,L. Söderström, Icon,T. L. Blockeel,S. Caspari,M. S. Ignatov,N. A. Konstantinova et al. (https://www.tandfonline.com/doi/full/10.1080/03736687.2019.1694329) - Um Bæjarstaðarskóg
Jul 28, 2022 · original
Nýverið rakst eg á þetta sérprent um Bæjarstaðarskóg eftir föður minn, Hákon Bjarnason, sem mér var ókunnugt um. Það er án ártals, en segir líklega frá ferð í Bæjarstað 1933. Skógurinn var síðan girtur 1935 og sá Hákon um það verk ásamt bændum í sveitinni. Að mörgu leyti er greinin samkvæð þeirri, sem birtist í Ársriti Skógræktarfélags Íslands 1936. Þó vil eg benda sérstaklega á eitt atriði hér, þar sem segir eftirfarandi: „Það er eftirtektarvert, að hjer, sem alls staðar annars staðar, þar sem ekki er of mikill ágangur búfjár, er það björkin, sem fyrst klæðir landið á ný. Kemur hún langt á undan öllum öðrum gróðri og virðist það allskýr vísbending náttúrunnar um það, hvernig heppilegast sje að græða upp landið,“ Þetta mættu þeir hafa í huga, sem hæst tala um uppgræðslu á Skeiðarársandi. Á myndinni hér fyrir neðan eru þeir, sem unnu við að koma upp girðingunni um Bæjarstað. Aftastur er O - Greiningarlykill að vatnaplöntum
Jul 6, 2022 · original
Mörgum hefur reynzt erfitt að greina plöntur, sem lifa jafnan í vatni. Einkum kemur tvennt til. Í fyrsta lagi eru vatnaplöntur oft án blóma og í öðru lagi eru blóm margra þeirra lítil og ósjáleg. Eftirfarandi lykil hef eg tekið saman til að auðvelda greiningu þessara tegunda. Hér eru teknar með helztu tegundir, sem vaxa í vatni, þó að margar þeirra geti líka þrifizt í vel rökum jarðvegi. Að sinni hefur grastegundum verið sleppt, en þar koma einkum til greina Glyceria fluitans og Catabrosa aquatica . Þetta eru aðeins fyrstu drög og seinna er ætlun að fínpússa lykilinn og setja inn myndir. 1 Stöngull blaðlaus, en blaðslíður á stundum með smá blöðku ………….. Eleocharis 1 Stöngull með venjuleg laufblöð ………………………………………. 2 2 Blöð samsett eða með stórum skerðingum (flipótt eða skipt) …………………. 3 2 Blöð heil, sepótt eða tennt …………………………………. 5 3 Gisstæð blöð með veiðiblöðrum ………… Utricularia minor 3 - Enn um Rorippa
Feb 5, 2022 · original
Í nóvember 2015 setti eg hér inn pistil um Rorippa -ættkvísl (sjá hér ). Síðan gerðist það, að hinn 28. júní 2019 fann eg Rorippa palustris (L.) Besser í Deildartungu í Reykholtsdal í Borgarfjarðarsýslu. Á lítt gróinni hálfdeigju uxu allnokkrar 6-12 cm háar plöntur og voru þær flestar bæði í blóma og með nærri fullþroska skálpa. Hinn 15. júní 2020 var hugað að tegundinni. Þá kom í ljós, að þétt breiða óx í einu horni girðingar, þar sem ferðamenn safnast saman til að horfa yfir sléttlendið handan við hverinn. Tegundin stóð í fullum blóma og hefur náð að dreifa sér nokkra tugi metra frá þessum stað. Þar hjá óx annar nýkominn slæðingur, Arabidopsis thaliana (L.) Heynh., sem hefur verið nefndur vormelablóm. Víst má telja, að báðar tegundirnar hafi borizt til landsins með ferðamönnum. Þetta eru ekki einu tegundirnar, sem hafa komið á þennan hátt og sumar hverjar náð að dreifa sér verulega á v - Helzti mjög er að flestu kveðið
Nov 16, 2021 · original
Minnisgrein að gefnu tilefni um ævisögu Sigurðar Þórarinssonar Í nýútkominni ævisögu Sigurðar Þórarinssonar, Mynd af manni I-II, er víða getið um föður minn, Hákon Bjarnason. Það kemur ekki á óvart, því að þeir áttu ýmislegt saman að sælda. Vissulega skarst í odda með þeim tvisvar á langri ævi, en í bæði skiptin tókust fullar sættir, enda var þeim hlýtt hvorum til annars. (Í bókinni er aðeins rætt um annað ágreiningsefnið, en hinu sleppt.) Eftir lestur á riti þessu mætti gera ýmsar athugasemdir, en hér verður aðeins staldrað við eitt atriði, það er kaflann Upphaf öskulagarannsókna (bls. 200). Fyrst er þar getið um, að Guðmundur Kjartansson hafi haft í hyggju að „rannsaka vikurlög og sandlög vúlkansks uppruna í jarðvegi“ 1933. Að vísu varð lítið úr þeim athugunum, enda beindist hugur Guðmundar að öðrum viðfangsefnum í jarðfræði. Mér þykir næsta víst, að þetta hafi orðið fyrir áeggjan Guðm
Discovered by the rss-feed-index crawler, which checks each feed at most once a month.
Same record as JSON: https://api.agentalog.com/api/feeds/fd_ahb_is_a4332dca798af6ec. More from this site: ahb.is in the Feeds tab.