rss2
Alda
alda.is · Icelandic
Félag um sjálfbærni og lýðræði
rss2 wordpress content atom dc sy
- Last post
- Sep 29, 2026
- Posts in 24 h · 7 days · 30 days
- 0 · 2 · 3
- Our last check
- Answering
- Served from
- Iceland
- Site title
- Alda – Félag um sjálfbærni og lýðræði
- Text score at discovery
- 4,116
- Format
- rss2
- Features in the feed
- content, atom, dc, sy
- Community
- wordpress
Posts
What our queue read from this feed. Open one to read it here, or go to the site that published it.
- Aðalfundur Lýðræðisfélagsins Öldu 2026
Sep 29, 2026 · original
Boðað er til aðalfundar Öldu, félags um sjálfbærni og lýðræði, þann 8. október 2026 kl. 20:00. Staðsetning verður tilkynnt eftir nokkra daga. Dagskrá fundarins er eftirfarandi: 1. Kosning fundarstjóra 2. Skýrsla stjórnar 3. Framlagning reikninga 4. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga 5. Lagabreytingar 6. Kosning kjörnefndar 7. Kosning stjórnar 8. Önnur mál Stjórnin hvetur alla félaga til að mæta á fundinn og hvetur til framboða í stjórn. Framboð til stjórnar verða kynnt eftir nokkra daga. Sérstök athygli er vakin á því að framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur þurfa að berast í síðasta lagi 3. október 2026 með tölvupósti á netfangið alda@alda.is . Nánari tilhögun á aðalfundi má finna í lögum félagsins . Stjórn Lýðræðisfélagsins Öldu. - Umsögn: Hækkun bankaskatts
Sep 29, 2026 · original
Félagið hefur sent inn til Alþingis umsögn um frumvarp sem lagt er fram í tengslum við fjárlög . Félagið gerir athugasemdir við þann kafla sem varðar hækkun sérstaks bankaskatts . Félagið styður hækkunina, enda sé eðlilegt að hagnaði bankanna sé deilt með samfélaginu, en kysi þó heldur eðlilegra bankaumhverfi og leggur til við Alþingi og ráðherra að láta meta stofnun samfélagsbanka á Íslandi, og/eða þá umbreytingu Landsbankans í slíkan banka (s.s. með breyttum áherslum í eigendastefnu og stjórnun hans). Umsögn Öldu um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2027, nr. 2_158 – bankaskattur Download - Fundargerð stjórnarfundar 22. júlí 2026
Sep 10, 2026 · original
Fundur settur kl. 20:23. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, Halldór Auðar Svansson og Þorvarður B. Kjartansson. Guðmundur setti fram skjal um eignir/innviði í opinberri eigu, þ.e. hvað ætti að vera í opinberri eigu. Rætt var um hvar mörkin á milli einkaeignar og opinberrar eignar eiga að liggja. Lagt var til sem viðmið er að fasteignir sem eru nátengdar þjónustu sem fólk getur ekki verið án, eigi að vera í opinberri eigu. Bent var á að sérhæft húsnæði, líkt og sjúkrahús, eigi að vera í opinberri eigu (sé þjónustan á opinberri hendi). Ekki sé þó endilega eftirsóknarvert að öll opinber starfsemi sé í húsnæði í eigu hins opinbera; slíkt borgi sig ekki alltaf. Á fundinum voru viðraðar vangaveltur um ljósleiðarakerfi – borgar sig að margir reki ljósleiðarakerfi og keppist um að veita þjónustu um þau? Varla. Þá var bent á að í drög - Alþjóðleg tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku: Ný samantekt
Jul 24, 2026 · original
Alda hefur gefið út fyrstu samantektina á íslensku um erlend tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku í einkageiranum sem hafa staðið yfir á liðnum árum. Tilraunaverkefnin eru nú orðin fjölmörg, flest gerð í Evrópu. Í samantektinni er fjallað ítarlega um tvö stór erlend tilraunaverkefni á vegum tveggja erlendra hugveita, áhrif styttingar vinnutímans fyrir vinnandi fólk sem tók þátt í tilraunaverkefnunum og á fjölskyldur þeirra, hvernig þátttökufyrirtækin fundu fyrir styttingu vinnutímans og hvað það er sem rekur stjórnendur til að umbreyta fyrirtækjum sínum þannig að fjögurra daga vinnuvika sé raunhæf. Tilraunaverkefnin eru borin saman við tilraunaverkefni á Íslandi sem voru rekin með góðum árangri á síðasta áratug. Samantektin jafnframt setur erlendu tilraunaverkefnin í sögulegt og alþjóðlegt samhengi og rekur aðdraganda tilraunaverkefnanna. Rakið er hvernig hugfarfar í kringum vinnu - Fundargerð stjórnarfundar 11. maí 2026
Jun 3, 2026 · original
Fundur var settur klukkan 20:15 þann 11. maí 2026. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, og Halldór Auðar Svansson. Samantekt um tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku . Guðmundur hefur sett saman efni um erlend tilraunaverkefni um fjögurra daga vinnuviku. Drögum hefur verið dreift á stjórnina. Fundurinn er sammála um að birta samantektina á vef félagsins. Tilgangurinn með samantektinni er meðal annars að til sé efni á íslensku um efnið og fyrir umfjöllun um efnið á vegum félagsins síðar meir. Styrkir til einkarekinna fjölmiðla . Fundurinn fjallaði um fyrirliggjandi frumvarp á Alþingi. Fundarmenn voru sammála um að frumvarpið tæki ekki á þeim áhyggjum sem félagið viðraði í bréfi til Allsherjarnefndar Alþingis í mars s.l. Umsögn um frumvarpið var útbúin og send til Alþingis. Umfjöllun um stöðu RÚV í samtímanum og til framtíð - Umsögn: Styrkir til einkarekinna fjölmiðla
May 11, 2026 · original
Félagið hefur sent inn umsögn um frumvarp til laga um einkarekna fjölmiðla . Félagið gerir athugasemd við að einkareknir fjölmiðlar fái almenna rekstrarstyrki og myndi fremur vilja að styrkir væru veittir til sérstakra verkefna . Umsögn Öldu um breytingu á lögum um fjölmiðla, nr. 38_2011 Download - 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar
Apr 13, 2026 · original
Frá upphafi áratugarins hafa átt sér stað mikilvægar framfarir á íslenskum vinnumarkaði hvað varðar vinnutíma. Þessar framfarir eru sýnilegastar á opinbera markaðnum þar sem 36 stunda vinnuvika er nú orðin útbreidd eftir sögulega kjarasamninga árið 2020 og endurnýjun þeirra árið 2024. Þessir kjarasamningar urðu mögulegir í kjölfar vel heppnaðara tilraunaverkefna um styttri vinnuviku hjá Reykjavíkurborg og ríkinu sem stóðu frá 2015 til 2020, en það voru stéttarfélög opinberra starfsmanna og sambönd þeirra sem hvöttu til þeirra og stóðu að þeim í samvinnu við ríki og borg. Þessi tilraunaverkefni voru þau stærstu af sínu tagi í Evrópu á sínum tíma og vöktu athygli utan landsteinana. Stytting vinnuvikunnar er raunveruleg og hún hefur haft jákvæð áhrif í samfélaginu: Tölur Hagstofunar sýna að vinnustundum á Íslandi fækkaði um þrjár stundir á viku, að meðaltali, hjá vinnandi fólki á árabilinu - Erindi til Allsherjarnefndar um stöðu fjölmiðla og RÚV
Mar 14, 2026 · original
Á dögunum sendi Alda formlegt erindi til Allsherjar- og menntamálanefndar varðandi stöðu fjölmiðla, fjármögnun þeirra, styrkjakerfi stjórnvalda til einkafjölmiðla og varðandi fjármögnun RÚV. Alda hefur áhyggjur af stöðu fjölmiðla og ákveðnum atriðum í áætlun stjórnvalda sem miðar að því að efla fjölmiðla. Telur félagið varhugavert að ætla að draga úr fjármögnun til RÚV , slíkt grafi aðeins undan fjölmiðlun og blaðamennsku en eflir ekki. Þá telur félagið verkefnastyrki vænlega til árangurs þegar kemur að styrkjum til einkarekinna fjölmiðla. Meginatriði bréfsins eru: Alda telur að RÚV hafi mikilvægu hlutverki að gegna sem fjölmiðill í þjóðareigu, og telur áríðandi að RÚV viðhaldi gæðum í blaðamennsku og fjölmiðlun. Þetta er mikilvægt lýðræðislegt hlutverk. Félagið telur einkarekna miðla einnig mikilvæga en að þeir muni búa við kröpp kjör um fyrirsjáanlega framtíð vegna tæknibreytinga. Að m - Fyrirlestur um fjögurra daga vinnuviku – 19. mars 2026
Mar 14, 2026 · original
Fyrirlestur um fjögurra daga vinnuviku í Þjóðminjasafninu þann 19. mars 2026 kl. 12:00–13:30! Fyrirlesarinn er Pedro Gomes, prófessor í hagfræði við Birkbeck Business School í Lundúnum. Hann er jafnframt höfundur bókarinnar Friday is the New Saturday . Pedro er einn þeirra sem hafa rannsakað kosti og galla fjögurra daga vinnuviku og hvernig megi gera hana að veruleika. Fyrirlesturinn er á vegum PRICE, stofnunar á Íslandi um lífeyrismál . Við hvetjum alla til að sækja fyrirlesturinn og fræðast um þessi mál. - Fundargerð stjórnarfundar 10. mars 2026
Mar 14, 2026 · original
Fundur var settur klukkan 20:15 þann 10. mars 2026. Mættir voru Guðmundur D. Haraldsson (er ritaði fundargerð og stjórnaði fundi), Sævar Finnbogason, og Halldór Auðar Svansson. Farið yfir drög að bréfi til Alþingis um styrki til fjölmiðla og stöðu RÚV. Lokið var við drögin á fundinum. Samstaða var um efni bréfsins. Rætt var um frumvarp að nýjum sveitastjórnarlögum sem lagt hefur verið fyrir Alþingi. Stefnt á að fara yfir frumvarpið og skrifa umsögn ef þörf krefur. Rætt um eignarhald á innviðum í opinberri eigu og hvað eigi að falla þar undir. Drög að lýsingu og forsendum þar að lútandi kynnt. Stefnt á að fullvinna drögin fyrir næsta fund. Fleira gerðist ekki. Fundi slitið kl. 22:15.
Discovered by the rss-feed-index crawler, which checks each feed at most once a month.
Same record as JSON: https://api.agentalog.com/api/feeds/fd_alda_is_887b407c3b3463bc. More from this site: alda.is in the Feeds tab.